Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýtt blogg!

26. ágúst 2007 klukkan 17:31
hæhæ....

Ég er búin að færa mig yfir á 123.is

http://www.123.is/magnea

tjekk it át

Ykkar
Magnea Dröfn Ullandi

Einn tveir og þrír!!!

24. júlí 2007 klukkan 22:12
Hæhæ

 

Af mér er nú bara mest lítið að frétta, alltaf að vinna eins og venjulega. En ég nenni ekki að hafa þetta langt blogg bara svona rétt að láta vita að ég sé lifandi og hvað ég hafi gert síðan síðast! ;)

 

Helgina 7.júlí fékk ég að fara fyrr úr vinnunni til að fara á tónleika með Ljótu Hálfvitunum og þeir voru snilld! Samviskubitið fór alveg eftir fyrsta lagið, skemmti mér geðveikt vel, svo keyrðum ég, Dagný og Ragnhildur á Húsavík staðráðnar að detta í það og djamma! Jeee.... Pabbi og mamma tóku vel í það en þau voru þarna líka sko, haha... en við fórum á Baukinn og það var bara skemmtilegt dansaði af mér rassgatið og svona.... mætti svo hreesss í vinnuna daginn eftir kl.1¨

 

Helgina eftir það var fríhelgi og eyddi ég henni í Ásbyrgi, en það var Ásbyrgismót sem er íþróttamót ungmennafélaganna hérna. Ég er of gömul og of ung til að keppa en ég má keppa næst þegar að ég verð þrítug! Friðbjörn vann til 6 verðlauna ef 6 greinum alveg frábært hjá honum og mamma fékk meira að segja tvenn verðlaun líka. mögnuð! Ég eyddi hinsvegar tímanum á hliðarlínunni að styðja alla fjölskylduna og endaði helgina raddlaus!

 

Síðustu helgi var ég að vinna en fór samt inn á Húsavík á laugardagskvöldið og hitti elskurnar Ragnhildi og Dagný en Magnea Freyja BEILAÐI á okkur! En það var bara gaman að hitta þær, bara allt of langt síðan að ég hitti þær alveg heilar tvær vikur!!!! Við fórum á rúntinn og svona skoðuðum lífið á Húsavík. Hahah... elska ykkur ;*

 

Næstu helgi er ég í fríi..

 
Fer reyndar örugglega að brussast eitthvað í Jökulsárhlaupinu sem er næstu helgi, en ég er eiginlega búin að koma mér í sjálfboðastarf í brynningum! Jájá það þarf að brynna þessu liði!


Það eru mærudagar á Húsavík, einhver til í djamm einhvers staðar?

 
bless

Hamraborgin er há og fögur...

07. júlí 2007 klukkan 00:09
Gott kvöld


Þá hyggst ég koma með eins og eitt stykki blogg, spurning hvernig það endar. Er að hugsa um að segja ykkur frá vinnuvikunni sem nú er að líða. Gaman gaman.

En þannig er nú það að ég hef verið að vinna á kvöldvöktum sem er frá eitt á hádegi til ellefu um kvöldið, þannig að dagurinn fer í ekki neitt nema bara vinna. Sem er bara leiðinlegt, þar sem að hinir vinnufélagar mínir vinna til fimm virku dagana, þá er ég að tala um hina þrjá verkamennina sem eru Árdís mín, Árni og Harpa ég nenni ekki að telja upp þessa landverði þar sem að þeir sitja bara á rassinum inni í Gljúfrastofu.

 

Eftir hádegi fáum við að gera einhver svona verk, af því að þá eru hin búin að rukka og þrífa fyrir hádegi. Og í þessari viku þá vorum við stelpurnar mikið í því að mála nýjan pall og handrið niður í botni sem er inn í Ásbyrgi, mæli eindregið með því að þið labbið inn að Botnstjörn og sjáið vel málaða handriðið upp að útsýnisstað málaði það alein! ;D hehhe... en maður verður vitni að ýmsu þegar að maður er staddur inn í Botni undir palli í snarhalla þar sem að maður rígheldur sér,  ég rann einu sinni niður spítu lenti á staur datt frá honum og rúllaði niður í brekku og pallurinn niður við Botnstjörnina var fullur af útlendingum sem horfðu á þessa áhættusýningu mína alveg frítt, og hlustuðu svo á mig og Hörpu veina úr hlátri þarna á milli trjánna! Mjög skemmtilegur dagur! Sama dag urðum við vitni af því þegar að einhver Guide söng Hamraborgina fullum hálsi uppá útsýnisstað yfir Ásbyrgi, það var líka flott! Daginn eftir var svo annar Guide með pínulítinn trompet og spilaði lag þarna inni það var líka mjög skemmtilegt! Það er eitthvað sem að ég á eftir að prófa að fara með trompet þarna og spila, verð að gera það einhvern tímann. ;D


Á kvöldin fæ ég svo að fara út á tjaldsvæði og rukka fólk. Yeeaah! Það getur stundum verið ágætt, sérstaklega þegar að maður hittir skemmtilegt og almennilegt fólk sem spjallar bara og grínast við mann og svona, annað en fólk sem fer að rífast við mann út af rafmagninu! Hvað er málið með Íslendinga sem geta ekki verið í útilegu nema að vera með gólfhita, sjónvarp og fullkomna kaffikönnu?!?!?

Dæmi með 2 kellingar sem stungu hausunum sínum út úr ógeðslega nýju og fínu hjólhýsunum sínum þar sem að ég stóð á milli og spurningarnar dundu á mér! Dæmi:

Þær: hvernig er þetta hérna eiginlega er ekkert rafmagn? Kemst maður hvergi í rafmagn?

Ég: jújú við erum með rafmagn

Þær: Já hvernig stendur þá á því að við fáum ekkert ragmagn? Er bara ekkert rafmagn hérna eða hvað? Ég er bara með gasið mitt því að rafmagnið ykkar virkar ekkert!!!!

Ég: nú? Jaa það er nú ekkert rosalega mikið á hverjum tengli sko... (hringi svo til að vera viss um hvað sé á hverjum tengli)

Þær: Sko mig vantar bara rafmagn fyrir sjónvarpið og svo könnuna!!! Er það ekki hægt eða? Eða veistu hvort að það sést sjónvarp hérna? Veistu það? Ha?

Ég: ég verð bara að viðurkenna það að ég veit það ekki.

Þær: nú jájá... En hvernig er þetta með rafmagnið? Af hverju eruð þið ekki með meira rafmagn?

Ég: Sko það eru bara 900 vött á hverjum tengli og ein almennileg hraðsuðukanna getur slegið því út!

Þær: Piffff.... nú já okey....  hrmpfff.... huhh......

Snúa svo hausunum sínum inn í hjólhýsin sín aftur og láta hressu kallana sína tala við mig sem voru ekkert nema almennilegheitin! Ég get ekki sagt annað en að ég hafi gaman af svona fólki. Ég skil eiginlega ekkert í mér að vera að reyna að fara í útilegu næstu helgi þar sem að ég verð ekki með gólfhita, sjónvarp eða kaffikönnu hvað þá brauðrist!!

En hér get ég sagt ykkur að í Ásbyrgi eru bara 900 vött á hverjum tengli og það eru bara 16 tenglar og ef að það er of mikil notkun slær staurinn út, ég get ekki bætt við rafmagnið eða slegið tveim tenglum saman (já ég var spurð að því í gær) ég myndi ef að ég gæti leggja hitaveitu svo að við þyrftum ekki að hita allt heita vatnið í sturturnar og vaskana svo að hjólhýsin fengju nóg af rafmagni en ég er bara  get það ekki. Sorry...


Svo má nú kannski nefna að landsmót Snigla er núna um helgina og er það haldið í Skúlagarði sem er 3 km frá húsinu mínu, og einnig eiga að vera haldnir AA fundir í kirkjunni minni sem er 100 m frá húsinu mínu. Svo gerir maður ekki annað en að heyra í hjólum gefandi í út um allt, er ekki frá því að maður sé með smá fiðring! Langar agalega að prófa eða jafnvel fá mér hjól! Eeen það er ekki að fara að gerast!

 
Ég þakka fyrir mig í bili...
 

Magnea handrukkari kveður

haha...

26. júní 2007 klukkan 22:17
Góðann og blessaðann

Þá er maður kominn heim úr sumarfríinu góða sem einkenndist einna helst af algjörri leti. Niiice. Ég komst að því í þessu fríi að litli bróðir minn er engann veginn eðlilegur, og hefur held ég frekar gamla sál. Hann bað um að fá að fara á safn! Og hvaða Íslendingar mæta korteri fyrir opnun á safn og bíða eftir að það opni?!? Á ÍSLANDI?!? Ég og mín fjölskylda, við fórum og skoðuðum Þjóðminjasafnið það var flott en ég var alveg búin að fá nóg eftir hálftíma og við vorum í klukkutíma að skoða. Þegar að það var búið spurði Unnar Þór á hvaða safn við færum næst! Ég og Friðbjörn (eldri og ættu að vera þroskaðari börnin) vorum fljót að svara því að við færum ekki á annað safn! Svo var bara verslað og svona eitthvað!

Ég og heiti potturinn vorum ekki bestu vinir þar sem að óvinir mínir höfðu tekið sér bólfestu undir pottinum og voru alltaf sveimandi þarna um, og ég er alveg viss um að ég hef alveg extra sætt blóð eða eitthvað því að mér fannst þeir alltaf vera að eltast við mig! Hahahh... þessi helvíti! Geitungarnir sko!

Fórum líka einn daginn að labba á Þingvöllum og það er alveg rosalega flott og fallegt þarna svo að ég sé nú væmin! Hahh...

Á föstudaginn komum við svo loksins heim og þá skiptum ég og Friðbjörn bara um föt og brunuðum á Kópasker ásamt Gumma, Röggu og Dagrúnu að horfa á fótboltaleik hjá Snerti. Það var bara ágætt, töpuðu bara 4-0! Svo eftir það rúntaði ég smá um Kópasker var að sýna Dagrúnu bæinn! Haha... svo fórum við í smávegis gleðskap, það var bara fínt gaman að hitta fólk og spjalla og svona. Svo fórum við bara heim og ég og Friðbjörn skoðuðum einmitt lítinn yrðling sem að þeir náðu um daginn og svínin þeirra! Roosa sæt!


Á laugardaginn fór ég svo upp í Mývatnssveit þar sem stefnan var tekin á Rjóðrið í Jónsmessupartý. Það var bara geðveikt gaman, fullt af fólki og slatti af fólki sem að maður þekkti og svona. Dagurinn í gær var svo bara tekinn rólega... haha!


Í gær byrjaði ég svo í Þjóðgarðinum, bara fínn dagur enda mátti hann svosem alveg vera það þar sem að ég átti nú afmæli, samt ömurlegur! 19 ára er ömurlegur aldur, gerist ekkert merkilegt nema maður eldist bara!! Ekkert spennandi! En ég og Árdís náðum að rifja um gamla tíma og tala um margt og mikið og koma Hörpu inn í málin þar sem að hún var að að byrja. En það er samt margt nýtt fyrir okkur að læra með komu Gljúfrastofu, núna eigum við t.d. eiginlega bara að sjá um tjaldstæðið en svo fáum við samt alveg önnur verkefni líka! Seeem er mjög gott. ;)


En þetta er orðið alveg nógu djöfulli langt og leiðinlegt


Bless og takk fyrir allar kveðjurnar **knús**

ps. hey ég er í fríi um helgina (laugardag og sunnudag) er eitthvað um að vera? Eruð þið að fara að gera eitthvað?

Eldur í mér, fer að hitna, brennur...

13. júní 2007 klukkan 21:11
Gott kvöld

Loksins er tölvan komin í hús, ekki búið að taka nema 2 vikur að koma henni hingað til mín, maðurinn bara GLEYMDI að senda hana! Pabbi varð brjálaður og húðskammaði hann, hahah eða svona lét í ljósi mikla óánægju sína skulum við segja. Alveg óþolandi þjónusta!
 

Annars hef ég frekar lítið að segja, er bara búin að vera heima síðustu daga, fór síðustu helgi inn á Akureyri á "djammið" með Unnari litla. Annars er frekar langt síðan að ég fór á djammið síðast bara Palli í maí! En við Unnar fórum til Þorbjargar frænku okkar að skoða nýja fellihýsið hennar og komum ekki heim fyrr en kl.2 á laugardagsnóttina! Það var bara ágætt...
 

Annars er ég að detta í eitthvað hrakfallabálka stuð þessa dagana, á síðustu viku hef ég farið þrisvar sinnum inn á heilsugæslu á Húsavík. Heheh... í fyrsta skiptið fékk ég bara að vita að ég væri með millirifjagigt, mér leið eins og ég væri áttræð þegar að hún sagði mér það. Daginn eftir fór ég í blóðprufu þá var ég bara 70 við hliðiná gamla fólkinu þarna í röðinni. Í dag aftur á móti þurfti ég á vaktlækni að halda þar sem að ég brunaði inneftir, fór samt bara sjálf ekki alveg það alvarlegt. En ég brenndi mig alveg hrottalega á hendinni, alveg djöfullegt skal ég segja ykkur og akkúrat svona síðasti dagurinn í Rifós. Og það á sér einmitt frekar klaufalega sögu svona eins og gerist fyrir mig, samlokugrillið var ekki vinur minn í dag semsagt og er ég með risa blöðru á hendinni og þvílíkar umbúðir! Þá leið mér svona eins og kannski 7 ára þegar að ég sagði hvernig ég brenndi mig. Ég er auli!


Á föstudaginn er ég svo að fara í sumarbústað með fjölskyldunni í Ölfusborgir, verðum þar í viku. Það verður vonandi bara skemmtilegt þá hef ég tíma til að jafna mig í hendinni áður en ég byrja á fullu í Þjóðgarðinum.

Ég ætla bara að segja þetta gott í bili

 
Magnea on fire

...

31. maí 2007 klukkan 16:51
Ég biðst afsökunar á bloggleysi mínu, en tölvan mín er í viðgerð núna og ég nenni ekki að blogga og allra síst á tölvuna hans föður míns.

Af mér er lítið að frétta nema bara vinna og atvinnutilboðin streyma inn alveg hreint! Svona er maður vinsæll! hahaha.... spaaug! Ég er svo fyndin að ég gæti dáið

bææ.... Svalur

Mooooolitvaaaaaa...

19. maí 2007 klukkan 17:52
Það er leiðinlegt veður en ég er komin í sumarfíling!



Hahahha..... ég var að skoða gamla bloggið mitt.... sem að síðustu bloggin eru síðan síðasta sumar og svo var ég að skoða gömul blogg síðan sumarið 2005! Hahaha.... það var svo geeeðveikt gaman, maður var samt djöfull lítill eitthvað og mikið barn... hahh úps! Rétt orðin sautján með bílpróf, æjæjæj. Það sem að við Hildur brölluðum í búðinni og utan vinnutímans ussuss..... Og Jii fallegi ungi maðurinn sem vann í tjaldbúðum á tjaldstæðinu og allar stelpur á Ásbyrgissvæðinu héldu ekki vatni yfir! Hahahah.... svo ég tali nú ekki um fótboltann. Mikið djöfull langar mig að fara í fótbolta í sumar, var að lesa söguna frá því að við fórum á Þórshöfn að spila við stelpurnar þar og ein úlnliðsbrotnaði og þegar að ég og Salbjörg fengum þetta frábæra tilboð á Ásbyrgisplaninu ef að hann bara gæti fengið far með okkur! HAHAHA..."Ég get sko alveg flengriðið ykkur ef þið viljið það?!?!?" Skrautlegt en þó skemmtilegt sumar, þó að ég hafi nú alltaf verið bílstjóri.;)



Síðasta sumar í Þjóðgarðinum með henni Árdísi minni.... Þar sem að voru bara ljótir kokkar í tjaldbúðunum og gerðu ekki annað en að horfa á okkur og hlæja. Ooog þvílíkt sem kom þar uppá og var gert. Alveg snilld svona þegar að horft er til baka. Enginn fótbolti samt. ;(


Núna sé ég samt jafnvel fram á mjööög gott sumar þar sem að ég held að ég verði í fríi aðra hvora helgi þannig að það er eins gott að plana partý þær helgar!!! Hahahaha..... spaauug...... ALLIR AÐ KOMA Í ÚTILEGU Í ÁSBYRGI Í SUMAR!!!!! (einungis 3 Í í þessari stuttu setningu)


Ball í kvöld? Já ég ætla að fara ein að detta í það og pirra húsvíkinga! Hehehe.... neeeeiiiii..... segi svona, ég er í svo miklu vitleysinga stuði núna ég er bara orðin sautján aftur eftir að hafa misst mig í þessi gömlu blogg! Hahaha..... ég er auli



Stórir strákar fá raflost!!!


Í augnablikinu er ég að hlusta á franska eurovision lagið (ekki spyrja mig af hverju) Ég sé bara fyrir mér Bartes hlaupandi um allt svið, gott lag! ;D hahahah


"Dulla mín viltu fara fram í stofu fyrir mig og gá hvort að John Wayne sé dauður!"

Góðann og blessaðann og gleðilegt sumar!

14. maí 2007 klukkan 20:14
Guten Tag kæru vinir nær og fjær! Svalur

Jæja ekki núna um helgina heldur síðustu helgi þá fór ég á Akureyri að hitta elskurnar mínar Dagný, Tinnu, Magneu Freyju, Ragnhildi, Eygló og Valgerði en Arna var ekki! Ooo! Eeen við fórum út að borða saman á La vita bella og var það bara mjög gaman, fengum okkur svo feitustu súkkulaðiköku í heimi í eftirmat og djöfull var hún góð. Eftir matinn skruppum við svo á Kaffi Ak að spjalla eitthvað svo ákváðu stelpurnar að fara bara á djammið og þá þurftu þær að fara að græja sig fyrir það, ætluðu nú að reyna að draga mig með en ég afþakkaði pent og keyrði þær bara niður í bær og fór svo. Lofaði bara að ég skyldi koma helgina eftir og taka eitt eurovision djamm með þeim.

Núna um helgina fór ég svo aftur inn á Akureyri til að taka eurovision djammið að sjálfsögðu,var komin á eyrina um miðjan dag og þá hófust ýmsar svona redderingar hahah.... versla hitt og þetta inn fyrir kvöldið og svona, þar sem að Eygló var með partý og ég gisti btw hjá henni líka! Mér var sagt að það væri þema og þemað var Glimmer!! Nú ég tók þessu svo bókstaflega að ég mætti í glimmer kjól og glimmer máluð, við vorum bara tvær samt í glimmer kjólum! Ussussss... En þetta var mjög gaman svo héldum við niður í bæ í Sjallann þar sem að við fengum fríann bjór! :D Skruppum svo aðeins á Kaffi Ak en fórum fljótlega yfir í Sjallann aftur!! Mjööög skemmtilegt kvöld, svo ég tali nú ekki um heimferðina! Hahahah......

Annars gengur allt bara sinn vanagang, sauðburður byrjaður hjá mér og allt. Heheh.... Alltaf líka jafn gaman í vinnunni, ætlum að fara að setja upp leikritið Kardimommubæinn í Skúlagarði held ég bara, æfingar hafa staðið yfir núna í marga daga og sérstaklega þá á lögunum í verkinu, en við þarna í sláturhúsinu erum virkilega söngelskt fólk hvort sem að fólk getur haldið lagi eða ekki. Hehehehe....
Ullandi

 
Annars ætla ég að fara að segja þetta gott í bili...

Mér er enþá illt í puttanum!




???

03. maí 2007 klukkan 19:32
Hæ sætu!

Þakka allar kveðjur og stuðning síðustu daga.


En hvernig líst ykkur á nýja útlitið mitt?!? Þarf reyndar að gera eitthvað í þessum smarties banner!

Kem  með blogg bráááðum.... Ullandi

22.apríl 2007

22. apríl 2007 klukkan 19:16


Ég sendi þér kæra kveðju,
Nú komin er lífsins nótt,
Þig umvefji blessun og bænir,
Ég bið að þú sofir rótt.


Þótt svíði sorg mitt hjarta,
Þá sælt er að vita af því,
Þú laus ert úr veikinda viðjum,
Þín veröld er björt á ný.


Hvíl í friði elsku afi

Prófíll

  • Nafn: Magnea Dröfn Hlynsdóttir
  • Staður: Kelduhverfi
  • Atvinna: nemi í Snyrtiakademíunni og Framhaldsskólanum á Laugum
  • Hjúskaparstaða: Frjáls eins og fuglinn
  • Um mig: Ég er lítil, dökkhærð, tala hátt og hlæ hátt!